Jóna Bjarnadóttir

Jóna Bjarnadóttir header image 1

Kreppa smreppa

October 5th, 2008 · 1 Comment

Er ég virkilega eina mannsveskjan á landinu sem finnst svona “kreppa” vera spennandi? Ég vil samt heldur nota öll önnur orð en kreppa í augnablikinu. Kreppa fyrir mér er kaffilíki og sala á útlenskum varningi undir borðið hjá kaupmanninum á horninu. Við erum svo laaaaaang frá þessu.  Svona fyrirbæri eru bæði endurnærandi og þroskandi fyrir þá sem hafa snefil af bjartsýni og ævintýraþrá. Það hafa allir gott af því, með reglulegu millibili, að fara yfir birgarstöðuna hjá sér, skera niður allan óþarfa, rýna í eyðsluna og sjá hvar er hægt að sleppa án þess að hljóta skaða af. Það sem kemur manni á óvart er hvað maður nær að búa til mikin pening bara með þessu.

Þetta er bara eins og góð vorhreingerning, líður okkur ekki öllum vel eftir að við erum búin að fara yfir fataskápinn, henda því sem við erum hætt að nota (með öðrum orðum “pössum ekki í lengur”). Taka bílskúrinn í gegn og fara með gamla dótið í góða hirðinn. Maður finnur alltaf eitthvað sem maður var búin að gleyma að maður ætti. Auk þess verður alveg himinlifandi yfir því hvað maður á í raun mikið sem er ennþá hægt að nota.

Eftir svona tiltekt getur maður sett upp Plan B, viðbragðsplanið ógurlega ef allt fer á versta veg.  Þegar Plan B er rýnt furðar maður sig á því hvað við getum í raun þolað mikið áður en neyðarástand myndast. Það er nóg af mat í landinu, íslenskur landbúnaður er einn sá besti í heiminum, sláturtíðin rétt að byrja með öllum sínum andlitum og pungum,  og svo ég tali nú ekki um íslensku paprikuna. Ef bensínið klárast þá tökum við bara strætó, hjólum eða göngum. Erum við hvort eð er ekki búin að strengja þess heit í langan tíma að hreyfa okkur meira? Þetta er ekkert flóknara en það. Eða erum við svona svakalega hrædd við að þurfa að neita okkur um þennan gríðarlega lúxus sem við erum orðin vön, tímabundið. Höldum við virkilega ennþá að hamingjan sé í stærri flatskjá?

 Við erum svo hrædd við að geta aðeins að rekið einn bíl í stað tveggja, að þurfa að bíða með að gera upp baðherbergið í nokkra mánuði eða OMG að komast ekki til útlanda 4 sinnum á ári. Ef þetta er tilfellið þá held ég að það sé ekki bara holt heldur nauðsynlegt að sjá hvað við virklega getum komist af án mikils af þessu rusli og samt verið þokkalega hamingjusöm. Það gerir ekkert nema gott að sjá hversu langt við komumst, alveg sama í hverju það er. Þetta ástand sem hefur verið undanfarin ár er ekki eðlilegt ástand og við megum ekki miða við það.

Þetta er bara mjög spennandi verkefni sem mun þroska íslensku þjóðina gríðarlega mikið. Ég held að við séum öll sammála um að slík vinnubrögð sem hafa verið praktíseruð undanfarna mánuði hjá fólkinu sem stýrir landinu (bíddu…. hver er aftur borgastjóri í dag?) eru mjög svo óábyrg og óþroskuð. Þetta move hjá Dabba, með tilliti til hversu skynsamlegt það var fjárhagslega fyrir íslensku þjóðina, var gott spark í rassgatið á þessu fólki að fara að gera eitthvað. Ekki bara loka augunum og halda áfram að sukka þegar þú sérð hvert stefnir. Það verður spennandi að fylgjast með Ríkisstjórninni næstu daga og sjá hvernig þetta leysist. 

Á meðan við höldum heilsu og höfum tvær fætur er óþarfi að fara á taugum. Svo er bara að vona að við lærum á þessu og látum hlutina ekki fara úr böndum aftur þó að við upplifum smá góðæri. Hinn gullni meðalvegur er alltaf bestur bæði í sparnaði og eyðslu.

p.s. haustið er besti tíminn fyrir svona, kveikja á gömlu kerti, poppa í potti, taka upp sodastream tækið og kúra svo saman öll undir teppi og horfa á RÚV. Er það ekki svona sem við sköpum bestu minningarnar og höldum úti forvarnarstarfi fyrir börnin okkar? Hvað er slæmt við þetta?

→ 1 CommentTags: Pælingar

Skólatilhlökkun … eða hvað?

August 31st, 2008 · No Comments

Hlutirnir gerast heldur betur hratt. Allavega þegar þú bloggar bara tvisvar á ári. :) Nú er ég orðin fulltíma háskólanemi í skriljón efnafræðitímum. Og ég sem hataði efnafræði hér áður og skildi ekki afhverju það var verið að kenna okkur þetta bull. Ég var alveg 100% viss um að ég þyrfti ALDREI að nota hana og var satt best að segja mjög pirruð á því að þurfa að vera í þessu. En svona eru nú vegir mínir órannsakanlegir. Ég var einmitt að hugsa í morgun, þegar ég fór með Skugga minn í göngutúr, að þetta væri einmitt það sem er svo gaman í lífinu. Maður veit aldrei hvar maður er ári seinna og það á ekki að útiloka neitt.

Það eina sem kom mér á óvart er að ég nenni ekki að byrja að læra. Ég er búin að draga það og draga að opna fyrstu skólabókina og finna mér alveg fullt annað að gera (er ég ennþá gelgja?) til að þurfa ekki að læra. Ég var alveg handviss um að ég gæti ekki haldið í mér að byrja að lesa. En einhvernveginn þá veit ég að um leið og ég opna fyrstu bókina hefst 3 - 4 ára háskólanám sem verður alveg heavy. Þannig að ætli maður reyni ekki að draga að opna þá gryfju þar til á síðustu stundu.

 Þessvegna ætla ég td. núna að finna mynd af Skugga og dúlla mér við að setja hana inn …… æji ætlu maður þroskist nokkuð í þessu lífi. :)
copy-of-copy-of-picture-048.jpg

→ No CommentsTags: Skólinn

Hjartahnoð og raflost

August 28th, 2008 · 3 Comments

Ómægod! ég hefði næstum geta haldið uppá einsárs afmæli af ENGU bloggi, sjæse! En anywho þá er ég búin að eyða síðasta klukkutíma í að cracka passwordið mitt bæði hjá Wordpress og Lunarpages og eftir að hafa prufað ÖLL password í heiminum þá var það nottla það sem ég prufaði síðast. Gaman að segja frá því.

En þessi færsla verður bara mjög stutt, rétt til að sjá hvort drallið virkar ennþá :)

→ 3 CommentsTags: Uncategorized

Jólakveðja

December 20th, 2007 · 3 Comments

Mig langar að senda þessum eina sem les bloggið mitt jólakveðju. Takk fyrir að halda tryggð við þetta einfalda en þó einlæga blogg mitt. Þessi kveðja er sérstaklega fyrir þig, hvar í heiminum sem þú ert staddur. Þetta lag sem fylgir kveðjunni er tileinkað þér.

Megi ljós og friður fylgja þér yfir hátíðarnar


Music Videos

→ 3 CommentsTags: Uncategorized

Kveðja til besta vinar míns

November 27th, 2007 · No Comments

Mig langar að senda þér þetta lag, haltu áfram að vera trúr sjálfum þér. Gangi þér vel. Fyrir þá sem eru svona textanördar eins og ég þá er textinn hér.

→ No CommentsTags: Uncategorized

Vel skrifað …

November 9th, 2007 · No Comments

Mér var sendur þessi linkur í tölvupósti og langar að benda ykkur á að lesa þetta. Ég var ein 88% sem sáu ekkert athugavert við það að bókin 10 litlir negrastrákar yrði endur útgefin. Bókin var lesin fyrir mig sem barn oft og mörgum sinnum og mér fannst þessir strákar algjör krútt. Ég á meiraðsegja þessa bók í upprunalegri útgáfu og hef passað uppá hana í gegnum tíðina. Mér fannst þessi viðbrögð hinna 22% vera mikil þröngsýni. Þessi skrif opnuðu augu mín fyrir ástæðu þessara bókar og ég sá að skoðun mín var byggð á fáfræði og þröngsýnin var greinilega mín meginn. Ég er ekki að segja að ég sé á móti því að gefa svona bækur út aftur en það á ekki að gefa hana út sem barnabók. Heldur fróðleik um það hvernig fólk hugsaði fyrir 100 árum síðan. Fyrir ykkur sem langar að lesa þetta þá er greinin hér.

→ No CommentsTags: Uncategorized

Getur einhver græjað þetta?

November 5th, 2007 · 2 Comments

Mig langar svo í þetta stef sem hringitón, getur einhver græjað það?

→ 2 CommentsTags: Uncategorized

Jólagjöf herrans sem á allt

November 5th, 2007 · No Comments

… nema skemmtilega fjölskyldu :)

→ No CommentsTags: Uncategorized

Ellimerki vs. þroski

October 31st, 2007 · 2 Comments

Ég áttaði mig á því um daginn, á afmælisdag móður minnar, að ég væri komin á þann aldur sjálf að njóta þess að eldast. Þetta er mjög skemmtileg tilfinning. Hún endurspeglar meðal annars það viðhorf að geta ekki hugsað sér að vera 25 ára aftur. Hvað þá yngri. Bróðir minn sem er 10 árum yngri en ég (einmitt 25 ára) hélt því fram að þetta væri afneitun. Sjálfsagt hefði ég líka haldið því fram þegar ég var 25 af því að þá veit maður ekki betur. Sem betur fer. Allt undir 30 ára er svo mikið meira basl, allavega í minningunni. Námsárin, blankheitin, óvissan, blankheitin, baslið og blankheitin. Síðar meir hættir maður að taka lífinu svona alvarlega, það er svo mikið frelsi. Maður eltist minna við það sem skiptir engu máli og meira við það sem skiptir máli. Sá sem stýrir þessu öllu var greinilega búinn að skipuleggja þetta vel. Best að taka baslið fyrst, þegar fólk veit ekki hvernig hitt er og síðan rólegheitin og þroskann eftir það. Það þýðir ekkert að byrja á því að hafa það gott og “þroskað” og enda í basli og blankheitum.

Ég fékk sent myndband frá Óla mínum áðan sem minnti mig á þetta. Ég posta þessu myndbandi fyrir ykkur öll sem eruð að “eldast” eins og ég og hafið húmor fyrir lífinu. En einnig ykkur hin sem eruð ennþá kjánar og haldið að lífið sé að hanga á Sirkus, vera þunnur og tolla í tískunni.

→ 2 CommentsTags: Húmor

Stormsker er snillingur

October 23rd, 2007 · No Comments

Pælingar snillingsins

→ No CommentsTags: Pælingar · Húmor